Ikea opnar í næstu viku
Vikurfrettir.is: Eftir tæpa viku mun í Kauptúni í Garðabæ opna stærsta verslun á Íslandi því sænski húsgagnarisinn IKEA opnar nýja verslun í 20.600 fermetra húsnæði. Jóhannes Rúnar Jóhannesson er framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi og leiddi hann blaðamann Víkurfrétta um nýja húsnæðið sem er óðum að taka á sig lokamynd en opnunardagur er 12. október.
„Þessi verslun er þrefalt stærri en núverandi verslun í Holtagörðum. Hér höfum við 55 sýningarbása samanborið við rúmlega 20 í Holtagörðum. Hér verður víðara til veggja og hærra til lofts en með þessu erum við að koma til móts við kúnnann“ sagði Jóhannes.
Það eru ekki nema níu mánuðir síðan fyrsti staurinn var settur upp og byggingahraðinn því góður en eflaust hafa nokkur hundruð iðnaðarmenn komið að byggingunni að því er Jóhannes segir. Ístak er verktaki að húsinu sem hannað er af IKEA með þarfir IKEA í huga. Þetta er í fyrsta skipti núna sem IKEA á Íslandi er í húsnæði sem er sniðið að þörfum verslunarinnar, alltaf hefur þurft að aðlaga verslunina að húsnæðinu svo þetta er mikil bylting fyrir fyrirtækið.
Gestafjöldi í verslun IKEA hér á Íslandi er með því mesta sem gerist í heiminum ef miðað er við höfðatölu. Heildargestafjöldi er 1,3 milljónir manna á hverju ári sem samsvarar því að hver íbúi á höfuðborgarsvæðinu heimsæki verslunina sjö sinnum á ári. Verslunin hefur allt frá byrjun notið mikilli vinsælda hjá Íslendingum en fyrirtækið fagnar í ár 25 ára afmæli. Fyrsta verslunin var opnuð sem deild í Hagkaupum í Skeifunni en það sprakk fljótlega og er því vöxtur verslunarinnar á þessum 25 árum mikill, er nú stærsta verslun á Íslandi.
Í nýja húsnæðinu mun IKEA halda í hefðir sem skapast hefur hjá fyrirtækinu en Boltalandið svokallaða hefur alltaf verið vinsælt hjá yngstu kynslóðinni. „Við munum halda áfram með boltalandið en með öðru sniði nú. Þemað í Boltalandinu er sótt í sænsku smálöndin en einkenni þeirra fá að njóta sín, m.a. grjótgarðar, gras, tré og himininn. Boltalandið er ekki það eina sem gert er fyrir börnin hér í IKEA því við erum með leikturna í öllum deildum verslunarinnar svo það verður ekki neitt vandamál að taka börnin með í verslunina. Þau fá einnig sinn stall á Veitingastaðnum sem er mikið stærri hér en í Holtagörðum. Hér höfum við sæti fyrir 250 manns samanborið við 90 sæti á gamla staðnum.“
Allar deildir verslunarinnar verða mun stærri og með aukinni stærð verður vöruúrvalið í versluninni aukið um 25%. Jafnframt er hægt að sýna fleiri lausnir, t.a.m. er eldhúsdeildin búin að stækka mikið og tekur IKEA nú í sölu blöndunartæki. Hægt verður að máta öll blöndunartækin við vaska svo fólk sér allar mögulegar lausnir. Það sama á við um borðplötur sem eru lausar og hægt að máta þær við mismunandi innréttingar.
Verslunin er þannig upp byggð að gesturinn byrjar á efri hæðinni þar sem húsgagnadeildin er og á leiðinni í gegnum hana má sjá fjöldann allan af sýningarbásum ásamt einni nýjung hjá IKEA. Þrjú „Heimili“ eru til sýnis í versluninni þar sem lausnir fyrir allt heimilið eru sýndar, stofa, eldhús, svefnherbergi og bað. Ímyndaðir íbúar búa á „heimilunum“, m.a. einhleypur karlmaður, hjón með eitt barn og einhleyp kona. Þannig er sýnt hvernig innrétta má heila íbúð úr IKEA.
Smávörudeildin er nú gríðarlega stór en hún tekur við þegar niður er komið úr húsgagnadeildinni. Þegar komið er út úr smávörudeildinni tekur við sjálfsafgreiðslulagerinn en þar geta viðskiptavinir nálgast vörur í stærri umbúðum og allt er þar haganlega merkt og auðvelt aðgengi. Þá taka við afgreiðslukassar sem nú verða fimmtán talsins og handan þeirra verður hægt að fá sér pylsur og ís líkt og í Holtagörðum.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.