Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

60% telja fjárhagslega stöðu sína betri nú en fyri

6. október 2006

Peningar

Mbl.is: Ríflega 60% telja að fjárhagsleg staða þeirra í dag sé heldur eða miklu betri en hún var fyrir þremur árum síðan, samkvæmt kjarakönnun sem gerð var meðal félagsmanna aðildarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á formannafundi aðildarfélaga SGS á Ísafirði nú í dag.

Yfir 80% hafa fundið mikið fyrir hækkandi verðbólgu og þá helst í hækkun á matvöruverði.

49% telja mjög eða frekar líklegt að þeir verði í sama starfi núna og eftir 3 ár, en þetta hlutfall er lægra heldur í viðhorfskönnun sem gerð var fyrir Flóabandalagið í mars 2005.

Mun færri konur en karlar hafa óskað eftir launahækkun sl. 12 mánuði umfram samningsbundnar eða áður ákveðnar launahækkanir eða einungis 21% á móti 33% karla. 75% þeirra sem óskuðu eftir launahækkun, fengu hækkun í kjölfarið.

Meðalvinnustundir voru tæplega 50 hjá þeim sem voru í fullu starfi og meðalyfirvinnustundir 12. Austurland sker sig úr með fjölda yfirvinnustunda en þeir vinna að meðaltali tæplega 17 yfirvinnustundir á viku.

Heildarlaun þeirra sem voru í fullu starfi voru tæp 244 þúsund krónur að meðaltali. Heildarlaun karla voru tæp 279 þúsund krónur en kvenna 188 þúsund. Meðaldagvinnulaun karla í fullu starfi eru tæp 187 þúsund krónur og hjá konum eru þau tæp 150 þúsund krónur.

Umönnunarhópurinn er ósáttastur með launin þar sem að 54,7% segjast vera frekar eða mjög ósátt með launin en í heildina var hlutfallið 32,1%. Þá er þetta hlutfall einnig mjög breytilegt á milli kynja en 22,3% karla eru frekar eða mjög ósáttir og 51% kvenna.

Skýrsla um könnunina í heild sinni verður birt 20 október.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.