Svisslendingar íhuga byssubann
Rúv.is: Stjórnvöld í Sviss íhuga að svipta menn rétti til að eiga stríðsvopn
heima hjá sér vegna tíðra morða þar sem skammbyssum, orrusturifflum og
vélbyssum er beitt. Ekki er nema hálfur mánuður frá því 26 ára
bankastarfsmaður gekk inní veitingahús í Baden og skaut 20 skotum á
gesti. Sjötugur karlmaður lést, fjórir særðust, þar á meðal bræður á
táningsaldri. Svisslendingar hafa ekki fastaher, en allir karlmenn
milli tvítugs og þrítugs þurfa að vera í viðbragðsstöðu, fá herþjálfun
og þurfa að æfa vopnaburð af og til í áratug. Þeir geyma skotvopn sín
heima, og þurfa ekki að láta þau af hendi þegar þeir verða þrítugir.
Fyrir vikið eru 2 milljónir skotvopna á heimilum manna í sjö milljón
manna landi. Og hvergi í Evrópu verða byssur fleiri að bana. Þannig
voru 48 manns skotnir í Sviss árið 2005. Þar falla sjö sinnum fleiri
fyrir byssuóðum morðingjum en í Bretlandi. Gömul rök eru fyrir því að
vopna svissneska karlmenn, þeir eigi að vera reiðubúnir að berjast við
innrásarheri frá Frakklandi, Þýskalandi og Ítalíu. Ýmsum finnst þessi
rök nokkuð úrelt, þar á meðal kvenréttindasamtökum, en þau vilja úthýsa
skotvopnum af heimilum manna.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.