Glæsilegir leikskólar en börnin send heim

Hönnun á nýjum 6 deilda leikskóla á Völlum stendur fyrir dyrum og auglýst er eftir nöfnum á skólann. Á sama tíma eru auð pláss í nokkrum leikskólum bæjarins, m.a. í nýjasta leikskólanum Stekkjarási, en þar væri hægt að taka á móti 34 fleiri börnum en nú eru þar – en það vantar starfsfólk til að annast þau. Skortur á starfsfólki hefur og gert leikskólanum erfitt fyrir að standa undir núverandi starfsemi. Nú á síðustu vikum hefur þurft að hringja á miðjum degi í foreldra og biðja þá um að sækja börnin sín, vegna þess að enginn er til umönnunar, og dæmi eru um að einn starfsmaður hafi annast 19 barna hóp. Það má lítið út af bregða í daglegri starfseminni, t.d. veikindi starfsfólks, til að ástandið verði alvarlegt og að sögn kunnugra veldur þetta óöryggi hjá börnunum. Sökum manneklu reynist örðugt að sinna því faglega starfi sem leikskólanum ber og leikskólastjórinn þarf iðulega að ganga í umönnunarstörf inni á deildum.
Rýr svör bæjarstjóra
Undirrituð ræddi þetta ástand á bæjarstjórnarfundi 3. október s.l. og spurði bæjarstjórann hvort hlutaðeigandi yrðu einfaldlega að sætta sig við stöðu mála eða hvort hann sæi einhverja lausn í sjónmáli. Reyndust svör hans heldur rýr; svona væri bara atvinnuástandið í þjóðfélaginu og erfitt væri að manna í störf á þessum stofnunum. Lýsti hann síðan ánægju sinni með stöðuna í biðlistamálum leikskólanna, sífellt yngri börn væru að komast inn.
Fólkið í forgang
En það er eitt að stytta biðlistana og koma börnunum að í glæsilegum og vel búnum stofnunum, það þarf líka fólk til að annast börnin. Um það snýst málið. Og er það ekki umhugsunarefni að nægt rými sé fyrir fleiri börn inni á leikskólunum en undirbúningur að byggingu enn nýs leikskóla sé samt á fullri ferð. Væri kannski réttara, í ljósi ástandsins, að einbeita sér að innviðunum?
Rósa Guðbjartsdóttir er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.