Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Bush vill að þingið banni hjónabönd samkynhneigðra

6. júní 2006

George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur enn á ný hvatt Bandaríkjaþing til þess að samþykkja viðauka við stjórnarskrána sem banni hjónabönd samkynhneigðra, en þingið mun koma saman til þess að ræða málið í þessari viku.

Bush segir hjónband karls og konu vera grundvöll siðmenningarinnar og að hún þyrfti vernd frá „aðgerðarsinnuðum dómurum“.

Andstæðingar forsetans segja hann hinsvegar reyna nota þetta mál til þess að vinna hylli vonsvikinna kjósenda repúblikanaflokksins.

Búist er við því að lagafrumvarpið nái ekki fram að ganga þar sem það nýtur ekki þess stuðnings sem það þarf á að halda.

Nauðsynlegt er að tveir þriðju hlutar í báðum þingdeildum styðji frumvarpið eigi lagabreytingarferlið að geta hafist.

Öldungaráðið mun hefja umræðu um lagabreytinguna í dag.


Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.