Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Jónína Bjartmarz nær ekki inn

21. apríl 2007

Vísir.is: Framsóknarflokkurinn nær ekki inn manni í Reykjavíkurkjördæmi suður
samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkissjónvarpið og
Morgunblaðið. Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir bæta við sig
þingmanni.

Samkvæmt
könnuninni fengi Sjálfstæðisflokkurinn 42,5 prósent atkvæði í
kjördæminu og fimm þingmenn. Í síðustu kosningum fékk flokkurinn fjóra
þingmenn í kjördæminu.

Samfylkingin fengi 24,9 prósent atkvæði
og tvo þingmenn en fékk þrjá í síðustu kosningum. Vinstri grænir bæta
við sig þingmanni og fá nú tvo. Alls sögðust 18,8 prósent þeirra sem
tóku afstöðu muna kjósa Vinstri græna.

Framsóknarflokkurinn
fengi 4,5 prósent atkvæði ef gengið yrði til kosninga nú og engan mann
kjörinn. Í síðustu kosningum fékk framsókn einn mann kjörinn. Samkvæmt
þessu næði Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, ekki inn á þing en hún
skipar fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu.

Frjálslyndir
mældust samkvæmt könnuninni með 3,9 prósent atkvæða og
Íslandshreyfingin með 5,4 prósent. Hvorugur flokkurinn næði inn manni
samkvæmt þessu.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.