Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Heilbrigðisráðherra á móti einkavæðingu

5. október 2006

Siv Friðleifsdóttir

Visir.is: Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, eru ósammála um hvort auka eigi aðkomu einkaaðila að heilbrigðiskerfinu. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi á þriðjudag að styrkja ætti heimildir til þess að fela öðrum en opinbera heilbrigðiskerfinu að annast heilbrigðisþjónustu.

Siv segir frumvarpið, sem bráðlega verður lagt fram, ekki rýmka heimildir til einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu. „Þetta er frumvarp sem unnið var að í nefnd þar sem fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna eiga sæti. Ég er bjartsýn á að þingið taki vel í efnisatriði þessa frumvarps. Þetta er rammalöggjöf um heilbrigðisþjónustuna þar sem eru fjölmörg atriði sem þarf að færa til betri vegar. Þar á meðal er að styrkja heimildir ráðherra til að semja um heilbrigðisþjónustu, og þær úrlausnir sem eru fyrir hendi innan ramma laganna," segir Siv og segir hið opinbera standa að mestu leyti að baki þjónustusamningum sem nú eru í gildi.

„Hið opinbera rekur heilbrigðisþjónustuna en það hafa verið gerðir þjónustusamningar um ákveðna þætti þar sem einkafélög hafa tekið að sér verkefni, sem að mestu eru greidd af hinu opinbera. Ég er alfarið á móti skrefum í átt að einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Það skiptir öllu máli, fyrir fólkið í landinu, að ekki verði teknar upp einkagreiðslur, líkt og tíðkast í Bandaríkjunum svo dæmi sé tekið, þar sem slíkt kerfi leiðir til ójafnaðar."

Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir styrkingu heimilda sem miði að frekari aðkomu einkaaðila að heilbrigðiskerfinu, vera skref í rétta átt. „Ég held að það sé göfugt og eðlilegt markmið að stefna að því að færa verkefni frá hinu opinbera til einkaaðila í heilbrigðismálum. Styrking á heimildum til þess að efla þjónustu, með aukinni aðkomu einkaaðila, er eðlilegt og rökrétt skref að mínu mati."

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.