Ágúst Ólafur gagnrýnir oddvita Frjálslyndra

Mbl.is: Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður
Samfylkingarinnar, segir áherslur Frjálslynda flokksins ekki góðan
grundvöll fyrir hugsanlegt samstarf Samfylkingarinnar og Frjálslynda
flokksins, í bréfi til Sigurðar Ólafssonar, annars ritstjóra
vefsíðunnar Vettvangur.net. Þetta segir hann aðspurður um ákveðin
ummæli oddvita Frjálslynda flokksins.
Jóns
Magnússon, oddviti Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður,
telur að í vaxandi mæli fremji útlendingar kynferðisglæpi hér á landi.
Á síðunni er vitnað í ummæli Jóns á þessa leið: ,,Það er ekki hægt að
sætta sig við það að konur geti nánast hvergi verið
óhultar fyrir kynferðisglæpamönnum. Ekki einu sinni á bestu hótelum
landsins. Það er ekki hægt að sætta sig við að fólk þurfi að yfirgefa
heimili sín á hverjum morgni óttaslegið yfir að það verði búið að
brjótast
inn þegar það kemur heim. Í vaxandi mæli eru þeir sem fremja þessa
glæpi
útlendingar."
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.