Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Svíar lentir í Kúbudeilu

21. mars 2007

Mbl.is: Svíþjóð hefur lent í diplómatískum útistöðum við
Kúbu og hafa Svíar meðal annars verið sakaðir um þjóðhreinsanir. Svíar
segja hinsvegar að póstpokar með diplómatapóstinum þeirra hafi verið
opnaðir á Kúbu.

Samkvæmt Dagens Nyheter var
sendiherra Kúbu nýlega kallaður inn á teppið í utanríkisráðuneytinu til
að meðtaka mótmæli sænsku stjórnarinnar vegna rofinna innsigla á
diplómatapósti.

Upphaf deilunnar má rekja til
ummæla Carl Bildt, utanríkisráðherra Svía á fundi í Genf. Í ræðu sem
hann hélt hjá mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna taldi hann upp þau
lönd sem hann teldi kerfisbundið brjóta grundvallar mannréttindi þegna
sinna og var Kúba á þeim lista.

Fulltrúi Kúbu í
SÞ, Juan Antonio Fernandez Palacios sagði að með orðum sínum hefði
Bildt fært umræðuna aftur til þeirra daga er blóði drifin
heimsvaldastefna Svía hefði valdið nágrannaríkjum þeirra ómældum
sársauka í undirokun og þrælahaldi.

Palacios bætti því við að Svíar stunduð þjóðhreinsanir með því að hleypa einungis fólki með réttan húð- og hárlit inn í landið.

„Þetta er óásættanleg málnotkun. Ég vænti þess að ég fái skýringu og afsökunarbeiðni,” sagði Carl Bildt á blaðamannafundi í dag.

Enn hefur ekki bólað á viðbrögðum frá Kúbu.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.