Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Fyrirtækjum ekki sett ný skilyrði í reglugerð

15. mars 2007

Mbl.is: Fjármálaráðuneytið segir, að fyrirtækjum hafi ekki verið sett ný skilyrði með reglugerð um heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli. Í reglugerðinni hafi lögbundin skilyrði, sem kveðið sé á um í lögum um ársreikninga, verið skýrð nánar að því leyti, sem þörf hafi verið talin á.

Íslenskir kaupsýslumenn hafa að undanförnu gagnrýnt reglugerðina, sem sett var í febrúar, og sagði Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss, m.a. á aðalfundi félagsins að stjórnvöld hefðu fyrirvaralaust breytt og þrengt reglur varðandi uppgjör fjármálafyrirtækja í alþjóðlegri mynt.

Í vefriti fjármálaráðuneytisins í dag segir, að því hafi verið haldið fram að með reglugerðinni sé verið að takmarka sjálfsákvörðunarrétt fyrirtækja. Það sé grundvallarmisskilningur en samkvæmt ársreikningalögum sé það meginregla að texti ársreiknings og samstæðureiknings skuli vera á íslensku og fjárhæðir tilgreindar í íslenskum krónum. Heimild til samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli sé því undantekning frá meginreglunni og veiting slíkrar heimildar þar af leiðandi háð því að starfsemi viðkomandi félaga uppfylli nánar tilgreind lagaskilyrði.

Það sem fyrst og fremst hafi knúið á um reglugerðarsetninguna var að við framkvæmd laganna hafi komið í ljós að þörf var á að skýra og útlista nánar tiltekin ákvæði laganna.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.