Forsætisráðherra furðar sig á Samfylkingunni

Mbli.is: Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í lokaræðu umræðna um varnarsamninginn á Alþingi í dag að betra hefði verið að hafa varnarlið áfram á landinu en sá kostur hafi ekki verið í boði, fjórar herþotur ekki fáanlegar. Athyglisvert sé að arftaki hluta Alþýðuflokksins, Samfylkingin, ætli ekki að bera neina ábyrgð á varnarmálunum en Alþýðuflokkurinn hafi átt stóran þátt í samskiptum við Bandaríkin í varnarmálum áður fyrr.
Geir sagði það ekki mega gleymast á hvaða grunni varnarsamstarfið sé byggt. Lýðræðisþjóðir hafi stillt sér saman í Atlantshafsbandalaginu gegn kommúnistaríkjum og Íslendingar hafi tekið þátt í þeirri hugmyndafræðilegu baráttu með varnarsamningnum sem gerður var 1951. Staðan sé gjörbreytt og nýr veruleiki og ógn, það verði að búa sig undir hið óvænta. Ríkisstjórnin hafi því komist að þeirri niðurstöðu að það borgaði sig að eiga áfram samstarf við Bandaríkin en á öðrum forsendum.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.