Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

Steingrímur ţótti besti rćđumađurinn

4. júní 2006

MBL: Félagar í JCI Íslandi mættu á þingpalla Alþingis meðan á eldhúsdagsumræðum stóð og lögðu ræðumennsku þingmanna í dóm. Þetta er í þriðja sinn sem JCI félagar mæta á þingpallana í þessum erindagjörðum. Var Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, valinn besti ræðumaðurinn og er þetta í annað sinn sem honum hlotnast þessi heiður.

Alvanir ræðumenn úr röðum JCI félaga dæmdu samkvæmt venjulegum dómarablöðum sem notuð eru í ræðukeppnum hér á Íslandi og erlendis. Árný Júlíusdóttir heimsmeistari í rökræðu 2003, Ingimundur K. Guðmundsson heimsmeistari í ræðumennsku 2001, Sólbjörg G. Sólversdóttir Evrópumeistari í rökræðu 2004.

Að sögn JCI Íslandi var daufara var yfir eldhúsdagsumræðum í ár en s.l. 2 ár og var keppnin um ræðumann alþingis jafnari nú en oft áður. Stjórnarandstaðan kom þó betur út í þetta sinn en ríksstjórnarflokkarnir en allir þingmenn stjórnarandstöðu náðu 200 stigum eða meira. Í efstu 5 sætunum urðu eftirfarandi þingmenn:

1. Steingrímur J. Sigfússon, VG
2. Ögmundur Jónasson, VG
3. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingunni
4. Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum
5. Sigurjón Þorðarson, Frjálslynda flokknum.

Frétt á mbl.is

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.