Rvk: Kjördæmamörkum verðu breytt
Rúv.is: Breyta þarf mörkum Reykjavíkurkjördæmanna fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Færa þarf allt að 2.000 manns úr Reykjavík norður yfir í Reykjavík suður.
Fram hefur komið í fréttum Útvarpsins í vikunni að allt útlit sé fyrir að breyta þurfi kjördæmamörkum Reykjavíkurkjördæmanna vegna þess hve fólksfjölgun í Reykjavík norður hefur orðið mun meiri en í Reykjavík suður. Gestur Jónsson, formaður Landskjörstjórnar, sagði í morgun að þetta þurfi að gera. Það hafi orðið endanlega ljóst eftir vinnufund hans með fulltrúum þjóðskrár. Gestur segir að á fundinum hafi verið ræddar mögulegar leiðir til að skipta kjördæmunum upp að nýju en vildi ekki tjá sig um hvaða leiðir væru mögulegar.
Kjördæmaskiptingin á að byggja á íbúafjöldanum eins og hann er 5 vikum fyrir kjördag en nú eru tæpar níu vikur þangað til kosið verður. Kjördæmamörkin á svo að auglýsa í Stjórnartíðindum eigi síðar en fjórum vikum fyrir kjördag. Reiknað er með að fundað verði aftur um málið síðar í vikunni.Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.