Úr stefnuræðum flokksformanna
Ruv.is: Geir H. Haarde forsætisráðherra boðaði til átaks í gegn slysum í umferðinni í Reykjavík í fyrstu stefnuræðu sinni sem hann hélt á Alþingi í kvöld. Geir fór yfir varnarmálin og margt af helstu verkum ríkisstjórnarinnar að undanförnu.
Matarskattinn bar einnig á góma og sagði Geir að tillögur ríkisstjórnarinnar um lækkun matarverðs væru væntanlegar á næstunni. Almenningur myndi verða var við þær verðlækkanir á næstu mánuðum og matarverð myndi verða svipað og gerist annarsstaðar á Norðurlöndum. Geir telur niðurtöðuna í varnarmálum góða.
Geir sagði að ríkisstjórnin ætlaði að beina því til Alþingis að nú þegar verði ráðist í framkvæmdir við umferðaræðar út úr höfuðborginni til að fækka slysum. Geir segir ýmis merki um að þenslan sé á undanhaldi.
Steingrímur J. Sigfússon vinstri grænum sagði kalda stríðinu ekki lokið fyrr en öll spil hefðu verið lögð á borðið um leyniþjónustu og persónunjósnir kalda stríðsins. Þær væru hneyksli. Bæði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, vísuðu til ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, við setningu Alþingis þar sem forsetinn varaði við því að þjóðin yrði klofin í afstöðu til nýtingar náttúrunnar eins og hún hefði verið í hermálunum áður.
Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, sem í kvöld hélt sína fyrstu ræðu á Alþingi, sagði um matarskattinn að unnið væri að marktækum umbótum í matarverði með þátttöku bænda og afurðastöðva.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður frjálslynda flokksins kynnti þingmál flokksins um afnám verðtryggingar lána og sagði að aflétta þyrfti bankaánauð af heimilum landsins. Íslenskir bankar væru ofverndaðir.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.