Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Hið rétta andlit herstöðvaandstæðinga

4. október 2006

Styrmir Gunnarsson

Í staksteinum Morgunblaðsins, mánudaginn 2. október, var fjallað um herstöðvaandstæðinga. Umfjöllunin hefur verið hin umdeildasta meðal

Í staksteinum Morgunblaðsins, mánudaginn 2. október, var fjallað um herstöðvaandstæðinga. Umfjöllunin hefur verið hin umdeildasta meðal þeirra en þykir þó varpa hinu rétta ljósi á þá.

Þeir gengu í þágu kommúnismans, sem hrundi með Berlínarmúrnum. Þeir gengu í þágu Stalíns og eftirmanna hans en Stalín var einn helzti fjöldamorðingi 20. aldarinnar. Þeir gengu í þágu þeirra, sem hnepptu aðrar þjóðir í þrælkun. Þeir gengu í þágu þeirra, sem myrtu verkamenn á götum úti í Berlín 17. júní 1953. Þeir gengu í þágu þeirra, sem sendu skriðdrekana inn í Búdapest til þess að drepa saklaust fólk á götunum þar. Þeir gengu í þágu þeirra, sem kæfðu Vorið í Prag í fæðingu Þeir gengu í þágu þeirra, sem drápu 10 milljónir manna í Úkraínu með hungursneyð af manna völdum. Þetta voru hugsjónir herstöðvaandstæðinga. Svona þjóðfélag vildu þeir skapa á Íslandi. Þeir vildu koma Íslandi undir hæl kommúnismans. Minning Samtaka herstöðvaandstæðinga verður ekki í heiðri höfð.

Staksteinar Morgunblaðsins 2. október 2006

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.