Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Aukið valfrelsi með heimakennslu

4. október 2006

Mbl.is: Tilraun með heimakennslu í Ölfusi er valkostur í skólastarfi sem vert er að útfæra nánar og skilgreina. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu sem unnin var á vegum menntamálaráðuneytisins en haustið 2003 sótti sveitarstjórn Ölfus um leyfi til menntamálaráðuneytis um að gera tilraun með heimakennslu í fræðsluumdæminu. Forsenda beiðninnar var beiðni fjögurra foreldra jafnmargra nemenda til fræðslunefndar Ölfus um að fá að kenna börnum sínum á heimilum þeirra.

Í niðurstöðu skýrslunnar kemur fram að skólayfirvöld í fræðsluumdæmi Ölfus eru jákvæð í garð tilraunarinnar og er umhugað að og rétt sé að henni staðið. Sú jákvæðni er kostur sem hægt er að nýta á uppbyggilegan hátt.

Gagnkvæmt traust ríkir á milli allra aðila þrátt fyrir að ákveðnir misbrestir séu á að verklagsreglum og samningum hafi verið fylgt. Það gagnkvæma traust er hægt að nýta til þess að betrumbæta skipulag tilraunarinnar. Úttektaraðili telur alla þátttakendur í tilrauninni hafa forsendur til þess að byggja upp nýjan samskiptagrundvöll og halda rétt á málum.

Í viðtölum við foreldra og börn má greina að heimaskólun hafi tvímælalaust sínar sterku hliðar. En þær verður að gera sýnilegri með markvissum aðferðum og skráningum.

Úttekt á heimakennslu í Ölfusi

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.