Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Stjórnarandstaðan styður stjórnarskrábreytingu

5. mars 2007

Mbl.is: Stjórnarandstöðuflokkarnir þrír tilkynntu á blaðamannafundi í dag, að þeir væru tilbúnir til að greiða fyrir því á Alþingi í vor, að ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum verði tekið upp í stjórnarskrá. Hafa þingflokkarnir samþykkt, að líta á þetta sem forgangsmál á vorþingi og bjóðast til að lengja þingið ef þörf krefur.

Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingar, sagði að með þessu væri stjórnarandstaðan að bjóða ríkisstjórninni upp í dans og boltinn væri hjá stjórnarflokkunum. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sagði á blaðamannafundinum, að það væri skynsamlegt að tengja þetta við hliðstæð umhverfisverndarákvæði, sem tekin hafa verið inn í stjórnarskrár í Noregi og Finnlandi. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði þó að stjórnarandstaðan vildi fyrst og fremst ljúka þessu auðlindarákvæði.

Í tilkynningu, sem lögð var fram á fundinum, segir að það sé sameiginlegt mat þingflokka stjórnarandstöðunnar, að sá efniviður og tillögugerð, sem fyrir liggi í áliti auðlindanefndar frá árinu 2000 og í tillögum vinnuhóps stjórnarskrárnefndar um auðlinda-, umhverfis- og mannréttindamál, myndi fullnægjandi grundvöll til að ljúka málinu.

Fram kom á fundinum, að í ljósi þess að meirihluti sé á Alþingi fyrir þessum breytingum, í ljósi yfirlýsinga ráðherra Framsóknarflokksins undanfarið, væri annað óforsvaranlegt en að koma þeim á. Steingrímur sagði á fundinum, að Framsóknarflokkurinn væri nú búinn að vera í ríkisstjórn í 4300 daga og tæki málið upp nú þegar 75 dagar væru eftir af kjörtímabilinu. Því væri augljóslega verið að leika þann leik, að taka hamskiptum fyrir kosningar.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.