Fréttir
Settust að á skrifstofu Jafnaðarmannaflokksins

Mbl.is: Um tveir tugir ungmenna komu sér í dag fyrir í aðalskrifstofu danska Jafnaðarmannaflokksins við Danasvej í Kaupmannahöfn. Segja ungmennin, að þau muni ekki yfirgefa skrifstofurnar af fúsum og frjálsum vilja fyrr en Ungdomshuset, sem lögreglan rýmdi í gær, verði skilað aftur.
Helle Thorning-Schmidt, formaður Jafnaðarmannaflokksins, íhugar að biðja lögreglu að fjarlægja ungmennin. Hún segist hafa beðið fólkið að yfirgefa húsnæðið og nú bíði hún átekta.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.