Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Mugabe varar stjórnarandstæðinga sína við

24. febrúar 2007

Mbl.is: Robert Mugabe, forseti Simbabve, hélt í dag upp á 83 ára afmæli sitt og varaði andstæðinga sína í stjórnmálum við því að setja sig upp á móti áformum um frekari aukningu valda hans í landinu. „Afvegaleidd ungmenni og jafnvel fullorðnir sem trúa á ofbeldi og skemmdarverk verða að skilja að ekkert samfélag mun líða það,“ sagði Mugabe í ræðustóli á leikvangi í suðvesturhluta borgarinnar Gweru.

„Viðeigandi aðgerðum verður alltaf beitt til að halda lögum og reglu. Þessi skilaboð eru líka ætluð stuðnings- og upphafsmönnum stjórnarandstöðunnar,“ sagði Mugabe. Slæm efnahagsstjórn í Simbabve undir stjórn Mugabe hefur gert landið að einu því fátækasta í heimi og með heimsins mestu verðbólgu.

Í borginni Bulawayo var óeirðalögregla látin gæta þess í dag að ekki kæmi til fjöldafundar stjórnarandstöðunnar. Mugabe sakaði í dag „óþjóðrækin“ fyrirtæki um að vinna með forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, og kynda undir óstöðugleikann í landinu. Mugabe sagði Blair ekki verða að ósk sinni um stjórnarskipti í landinu. Blair væri ekki Simbabve-búi og gæti það því ekki.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.