Gert er ráð fyrir 15,5 milljarða tekjuafgangi
Mbl.is: Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2007 er með 15,5 milljarða tekjuafgangi sem er tæplega 23 milljörðum betri afkoma en gert var ráð fyrir í síðustu langtímaáætlun. Tekjuskattar einstaklinga verða lækkaðir um 1 prósentustig á næsta ári auk þess sem persónuafsláttur hækkar. Skattleysismörk verða eftir breytingarnar um 90 þúsund krónur á mánuði og hafa þá lækkað um 14%. Barnabætur hækka um 1,7 milljarða milli ára meðal annars vegna lækkunar skerðingahlutfalla og að bæturnar munu ná til 18 ára aldurs í stað 16 nú.
Áætlað er að útgjöld vegna almannatrygginga og þjónustu við aldraða aukist um sjö milljarða króna á næsta ári meðal annars vegna hækkunar lífeyris, lækkunar skerðingahlutfalla og einföldunar almannatryggingakerfisins. Hrein staða ríkissjóðs, það er hreinar skuldir að frádregnum viðskiptareikningum og innistæðum ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands, lækkar úr 32% af landaframleiðslu árið 1997 í 1,4% á næsta ári.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.