Samið um samstarf svæðisstjórna á höfuðborgarsvæði

Mbl.is: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og Neyðarlínan hafa skrifað undir nýjan samning við svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.
Fram kemur í tilkynningu, að samningurinn fastmóti áralangt samstarf lögreglu og björgunarsveita við leit og björgun að týndu fólki og viðbrögð við slysum. Hann skýri og skilgreini boðunarferli björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu, hvenær þær séu boðaðar út og hvaða verkefnum þær eigi að sinna. Þá taki samningurinn á verkaskiptingu milli aðila.
Samkvæmt lögum bera lögreglustjórar ábyrgð á leit og björgun á landi, hver í sínu umdæmi og ber þeim að samhæfa störf þeirra sem koma að leitar- og björgunaraðgerðum. Lögregla kallar björgunarsveitir til aðstoðar ef þörf krefur. Þá eru björgunarsveitir samkvæmt lögunum hjálparlið lögreglu við leit og björgun á landi og við sérstök gæslustörf. Undir það falla verkefni svo sem leit að týndu fólki, hjálpar- og björgunarstörf vegna óveðurs og ófærðar og björgunarstörf vegna slysa fjarri alfaraleið. Við störf sem hjálparlið lögreglu starfa björgunarsveitir á ábyrgð hennar. Svæðisstjórn björgunarsveita fer með tæknilega stjórn björgunarsveita við aðgerðir.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.