Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

RÚV eykur útgjöld

29. september 2006

ÚtvarpsstjóriMbl.is:Ríkisútvarpið (RÚV) skuldbatt sig í dag til að
verja um 150% meira fé til kaupa á innlendu dagskrárefni eftir 5 ár en
gert er í dag. Svo segir í samningi ríkisins og RÚV um almannaþjónustu,
sem var kynntur í dag og tekur að öllum líkindum gildi þegar RÚV verður
að hlutafélagi. Hlutfall íslensks efnis verður, milli kl. 19 og 23 á
kvöldin, 65% á samningstímanum. Þá skuldbindur RÚV sig til að verja mun
meira fé til kaupa á íslensku dagskrárefni og mun það hækka úr 100
milljónum króna upp í 250 milljónir króna.

Frá
þessu segir á vef Menntamálaráðuneytisins: ,,Menntamálaráðuneytið og
Ríkisútvarpið hafa náð samkomulagi um drög að samningi um
útvarpsþjónustu í almannaþágu. Hlutverk samningsins er að skilgreina og
lýsa nánar tilgangi og hlutverki RÚV og þær kröfur sem gerðar eru til
Ríkisútvarpsins á grundvelli þess frumvarps sem lagt verður fram á
fyrstu dögum þingsins. Gert er ráð fyrir að hann taki gildi samhliða
breyttu rekstrarformi Ríkisútvarpsins.

Í
samningnum er skilgreint hvaða kröfur eru gerðar til RÚV er varðar
hljóðvarps- og sjónvarpsefni, þjónustu á textavarpi og veraldarvefnum,
menningararf, sjónvarps- og hjóðvarpsdreifingu og þær upplýsingar sem
koma eigi fram í ársskýrslu. Þá er gerð ítarleg grein fyrir því með
hvaða hætti RÚV skuli halda fjármálum og bókhaldi aðskildu milli
þeirrar starfsemi sem varðar útvarpsþjónustu í almannaþágu og þess sem
er í samkeppnisrekstri. Er gert ráð fyrir því að samningurinn sé til
fimm ára.

Helstu nýmæli í samningnum er
stóraukin áhersla á íslenskt efni. Er mælt fyrir um það í samningnum að
hlutfall íslensks efnis á kjörtíma aukist um tæp 50% á samningstímanum.

Þá
mun fjöldi textaðra klukkustunda aukast um 100% frá upphafi
samningstímabilsins til loka þess. Þá er stefnt að því að öll forunnin
innlend dagskrá verði textuð í lok samningstímabilsins. RÚV mun
jafnframt gegna veigamiklu hlutverki í að styrkja og efla nýsköpun í
dagskrárgerð með því að kaupa og sýna efni frá sjálfstæðum
framleiðendum.

Í samningnum skuldbindur RÚV sig
til að gerast kaupandi eða meðframleiðandi að leiknu sjónvarpsefni,
kvikmyndum, heimildamyndum eða öðru sjónvarpsefni og verja til þess að
lágmarki 150 milljónum króna á ári frá og með árinu 2008. Árið 2009
hækkar upphæðin í 200 milljónir króna og verður við lok
samningstímabilsins 250 milljónir.

Þá er stefnt
að því á samningstímanum að ná heildarsamkomulagi við rétthafa um
víðtækari notkun á eldra safnaefni til að gera það aðgengilegra
almenningi.

Þjónustusamningar hafa verið gerðir
við ríkisfjölmiðla í ýmsum Evrópuríkjum. Má nefna lönd eins og
Danmörku, Svíþjóð, Belgíu, Frakkland og Írland. Verið er að undirbúa
slíka samninga í fleiri löndum þar sem ríkari krafa er nú gerð um að
útvarpsþjónusta í almannaþágu sé vel skilgreind og haldið aðskilinni
frá starfsemi í samkeppnisrekstri."

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.