Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

Samgönguáćtlun: Sundabraut, göng og breikkun

12. febrúar 2007

Rúv.is: Áćtlađ er ađ nota 33 miljarđa króna til ađ breikka Hringveginn frá Markarfljóti vestur um og norđur til Akureyrar á nćstu 12 árum samkvćmt samgönguáćtlun sem kynnt var í dag. 20 miljarđar eru fráteknir vegna Sundabrautar.

Sturla Böđvarsson samgönguráđherra kynnti nýja samgönguáćtlun á Ísafirđi í dag. Áćtlunin er tvíţćtt, annars vegar áćtlun til nćstu 4 ára ađ ţessu ári međtöldu, hins vegar stefnumótandi áćtlun til 12 ára. Áćtlunin verđur lögđ fyrir Alţingi til afgreiđslu og ákvarđast framkvćmdir í samgöngumálum nćstu árin af ţeirri afgreiđslu.

Ađ ţessu sinni eru stćrri fjárhćđir í samgönguáćtlun en áđur hafa sést. Fjárfrekustu liđirnir eru ţrír; Sundabraut, breikkun hringvegarins og jarđgöng. Gert er ráđ fyrir tćpum 38 miljörđum króna í jarđgöng nćstu 12 árin, ţar af á nćstu fjórum árum tćpum 4 í Óshlíđargöng og tćpum 8 miljörđum í Héđinsfjarđargöng. Á öđru og ţriđja tímabili langtímaáćtlunarinnar er gert ráđ fyrir göngum milli Arnarfjarđar og Dýrafjarđar, Norđfjarđargöngum, Lónsheiđi og öđrum jarđgöngum. Gert er ráđ fyrir 300 miljóna króna framlagi til Vađlaheiđarganga á fyrsta tímabilinu.

Hringveginn á ađ breikka í áföngum fyrst frá Selfossi upp í Borgarnes, á síđasta tímabilinu, 2015-18, frá Markarfljóti ađ Selfossi og frá Borgarnesi til Akureyrar. Samtals er gert ráđ fyrir 33 miljörđum króna í ţetta verkefni.

Sundabraut er á dagskrá strax frá og međ ţessu ári, gert ráđ fyrir 8 miljörđum til ţeirrar framkvćmdar á fyrsta tímabili og 12 milljörđum á ţví nćsta, 2011-14.

Međal annarra framkvćmda má nefna lengingu flugbrauta á Akureyrar- og Egilsstađaflugvöllum, norđaustur-suđvesturflugbrautin á Keflavíkurflugvelli verđur tekin í notkun og samgöngumiđstöđ byggđ í Reykjavík.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.