Garðabær það bæjarfélag sem stækkar mest

„Garðabær er ekki svefnbær. Það er fullt af dínamík í þessu bæjarfélagi þó svo hann hafi rólegt yfirbragð. Mér finnst gott að hafa kyrrð og ró í bænum, ég er ánægður með það en hér er einnig nóg um að vera “ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ.
Hann er nú búinn að gegna því starfi í rúmt ár eða síðan í maí 2005. Honum líkar vel í starfinu, segir það lifandi og skemmtilegt enda starfi hann fyrir rúmlega 9000 kröfuharða íbúa.
Það er nóg að gera í Garðabænum um þessar mundir en uppbygging í Urriðaholtinu er nú farin í gang, fyrst atvinnusvæðið og síðar íbúasvæðið. IKEA er að fara opna nýja stórverslun sína í Urriðaholtinu á allra næstu dögum og eins hafa verslanir eins og Byko og Sjónvarpsmiðstöðin fyrirhugað byggingu verslana sinna á svæðinu.
„Þarna verða um 50 þúsund fermetrar af verslunar- og þjónustuhúsnæði svo það gefur auga leið að þetta eflir umsvifin í Garðabæ til muna. Svo er komið deiliskipulag fyrir íbúasvæðið í Urriðaholtinu en þar mun rísa fjölbreytt og skemmtileg byggð. Efst í holtinu mun verða umhverfisvæn starfsemi líkt og safn eða þess háttar og svo mun Oddfellow-reglan byggja höfuðstöðvar sínar þar. Eins er fyrirhugað að byggja viðskiptastræti við götuna sem tengir Reykjanesbraut við gamla flóttamannaveginn. Þar munu rísa 90 þúsund fermetra byggingar alls fyrir hátæknifyrirtæki, þjónustufyrirtæki af ýmsum toga sem og stofnanir.“
Miðbær Garðabæjar hefur mikið verið til umræðu og styr hefur staðið um tillögur Klasa hf. um hvernig miðbæjarskipulagi skuli háttað.
„Þeir hjá Klasa eiga að skila til okkar tillögum í október sem spennandi verður að sjá en nú þegar höfum við séð nokkrar þróunarhugmyndir sem okkur líst vel á. Til að mynda er uppi hugmynd um að reisa eins konar markað á horninu við Hafnarfjarðarveg og Túnin. Þar er hugsað til stórmarkaðs og ýmsa verslun og þjónustu. Svo á Garðatorgi sjálfu hefur komið sú hugmynd að byggja í kring um torgið. Þar yrði þá jafnvel Hönnunarsafn Íslands til húsa en við erum í samningaviðræðum við menntamálaráðuneyti um að safnið, sem er í Garðabæ, fái stærra og veglegra húsnæði við Garðatorgið. Þar myndu einnig verða íbúðir í húsum sem umlykja torgið sjálft. Undir þessum húsum yrðu síðan bílakjallarar. Rétt er að árétta að þetta eru bara þróunarhugmyndir en við leggjum mikla áherslu á að vel takist til og að sátt ríki um málið hjá bæjarbúum“ sagði bæjarstjórinn.
Í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins fyrir árin 2001-2024 er gert ráð fyrir að Garðabær og Mosfellsbær verði með hvað mesta fjölgun íbúa á tímabilinu. Gert er ráð fyrir að íbúar Garðabæjar verði 13.500 árið 2012 og 20.300 árið 2024 samanborið við 7.900 íbúa árið 1998. Fjölgunin verður því 157% á þessum tíma sem er sú mesta á höfuðborgarsvæðinu. „Samhliða þessari fjölgun íbúa er áætlað að störfum í bæjarfélaginu fjöldi einnig umtalsvert, t.a.m. er gert ráð fyrir að störf í bænum verði um 5.000 samanborið við 2.400 árið 1998. Garðabær er því í gríðarlegri sókn“ segir Gunnar.
Hver skyldu hafa verið erfiðustu málin í bæjarfélaginu á þessum tíma sem Gunnar hefur verið bæjarstjóri?
„Það hefur verið þegar tvö ungmenni létu lífið í bílslysum. Það voru erfið mál sem maður fann mikið fyrir, alls ekki auðvelt. Annars hafa stór mál er lúta að skipulagi verið erfið samanber tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kaplakrika að Kópavogi, það var erfitt mál en afar ánægjulegt þegar það leystist. Flest mál eru hinsvegar þess eðlis að þau eru úrlausnarmál, þau eru misflókin en alltaf má finna úrlausnir. Það er nú einu sinni þannig að með mér starfar mikið af góðu fólki og koma margir að hverju máli svo finna megi viðunandi úrlausn.“
Gunnar segir að í starfi sínu sem bæjarstjóri leitist hann við að halda sem bestu sambandi við íbúa bæjarins. Hann tekur við því fólki sem vill koma á hans fund og hefur ekki neinn afmarkaðan tíma til þess, fólk einfaldlega pantar tíma og hann lagar sig að fólkinu.
„Ábendingar og kvartanir íbúa eru í mínum huga verðmæti því það má nýta slíkt til þess að gera góðan bæ betri. Mér finnst einna skemmtilegast og ánægjulegast þegar ég get leyst mál einstaklinga sem mörgum finnast kannski “smámál” en fyrir fólkið sem hlut á í máli eru það stórmál. Ef maður getur gert lífið einfaldara og betra fyrir fólk eða dregið úr áhyggjum þess er það virkilega góð tilfinning og þau mál veita sennilega mestu ánægjuna í þessu starfi“ segir bæjarstjóri Garðabæjar sem vill hafa hlutina á persónulegu nótunum.
frétt af www.vikurfrettir.is
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.