Dönsk lífeyrissjóðslög standast ekki Evrópulög

Mbl.is: Dönsk lög um lífeyrissjóði samræmist ekki lögum Evrópusambandsins um frjálsa samkeppni samkvæmt nýjum úrskurði Evrópudómstólsins frá því í morgun. Samkvæmt dönskum lögum greiða Danir ekki skatt af þeim tekjum sínum sem þeir greiða í lífeyrissjóð fyrr en að greiðslu úr sjóðnum kemur. Velji þeir hins vegar að leggja lífeyrissparnað sinn í erlenda lífeyrissjóði ber þeim að greiða tekjuskatt af umræddum fjármunum samkvæmt dönskum lögum en það er brot á samkeppnislögum ESB samkvæmt úrskurði dómstólsins. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken.
Samkvæmt úrskurði dómstólsins hindra dönsku lögin aðgang erlendra lífeyrissjóða að dönskum markaði en dönsk yfirvöld hafa varið dönsku lögin með því að ómögulegt sé fyrir þau að innheimta skatt af lífeyrisgreiðslunum við greiðslur úr erlendum sjóðum.
Samkvæmt því sem fram kemur á vef Politiken hefur danska stjórnin þegar ákveðið að gera breytingar á lögunum í samræmi við úrskurð dómstólsins en breytingarnar eru taldar kosta danska ríkið milljarða vegna tapaðra skatttekna og annarra affalla við breytingarnar.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.