Ályktun stjórnar um fundargerðir nefnda bæjarins
Að loknum sveitastjórnarkosningum og við upphaf nýs kjörtímabils telur stjórn Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, ástæðu til að koma á framfæri eftirfarandi ósk til ritara nefnda og ráða innan bæjarins.
Huginn hvetur ritara funda til að rita fundargerðir eins ítarlega og kostur er. Greinargóðar og skýrar fundargerðir eru hornsteinar íbúalýðræðis og skoðanamyndunar almennings á þeim málefnum er stjórnsýsla bæjarins fjallar um. Huginn, sem eina stjórnmálahreyfing ungs fólks í Garðabæ, gegnir lykilhlutverki sem málsvari ungra Garðbæinga og innan félagsins er fjöldi fólks sem hefur ríkar skoðanir á bæjarmálunum.
Vel ritaðar fundargerðir gefa fólki aukið tækifæri til þess að gagnrýna það sem betur mætti fara og lofa það sem vel er gert. Það einkennir góða stjórnendur að geta tekið gagnrýni og nýtt sér hana. Það góða fólk sem nú situr við stjórn bæjarins hefur ekkert að óttast við að auka upplýsingaflæði til bæjarbúa
Stjórn Hugins
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.