Ráđherra vill skođa aldurstakmark á útihátíđum

Mbl.is: Magnús Stefánsson, félagsmálaráđherra, segist hafa mikinn áhuga á ađ skođa ađ setja aldurstakmark á útihátíđum í samráđi viđ dóms- og kirkjumálaráđuneytiđ og ađra ţá ađila er kćmu ađ slíkri ákvörđun. Segist ráđherra hafa ráđherra áhyggjur af ţví hvernig unglingar undir 18 ára aldri safnast saman á misskipulögđum hátíđum víđa um land, ekki einungis um verslunarmannahelgina, heldur einnig um ađrar helgar sumarsins.
Ţetta kemur fram í svari viđ fyrirspurn Kolbrúnar Baldursdóttur á Alţingi um hvort ráđherra hafi íhugađ eđa áformi ađ setja 18 ára aldurstakmark á skipulagđar útihátíđir, eđa sjá til ţess ađ börn undir 18 ára aldri fái einungis ađgang ađ slíkum hátíđum séu ţau í fylgd međ fullorđnum.
Í svarinu segir ađ ríkisstjórnin hafi samţykkt ađ fela félagsmálaráđuneytinu ađ hafa forystu í samstarfi ţeirra, sem starfa ađ forvörnum og móta heildstćđa forvarnastefnu.
Skipađur var fimm manna stýrihópur til ţess ađ leiđa verkefniđ undir forystu Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigđis- og tryggingamálaráđherra. Segir félagsmálaráđherra, ađ hópurinn hafi ţegar haldiđ fundi međ fjölmörgum ađilum, sem ţekkja fíkniefnavandann og forvarnastarf af eigin raun, einkaađilum, félagasamtökum og opinberum ađilum. Stýrihópurinn hefur skilađ ráđherra drögum ađ heildstćđri forvarnastefnu sem send var fjölmörgum ađilum til umsagnar og hafa umsagnir veriđ ađ berast ráđuneytinu nú í janúar.
Félagsmálaráđherra segir, ađ ein af meginástćđum ţess ađ máliđ var sett í forgang sé sú ađ hann hafi áhyggjur af ţví hvernig unglingar undir 18 ára aldri safnast saman á misskipulögđum hátíđum víđa um land, ekki einungis um verslunarmannahelgina, heldur einnig um ađrar helgar sumarsins. Magnús kallađi í sumar saman fulltrúa ráđuneyta, opinberra stofnana, félagasamtaka og fyrirtćkja og segist hafa fundiđ mikinn samhug og eindreginn vilja til ţess ađ samhćfa kraftana betur en gert hefur veriđ. Í framhaldi af ţví var hrint af stađ auglýsingaherferđ fyrir síđastliđna verslunarmannahelgi ţar sem foreldrar voru hvattir til ađ sýna aukna ábyrgđ í ţessum efnum.
Hćgri.is
Fréttabréf
Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.