Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Veik borgarstjórn

20. september 2006

Vilhjálmur Þ. VilhjálmssonMbl.is: Samþykkt var samhljóða með fimmtán atkvæðum í borgarstjórn Reykjavíkur í dag að skoða möguleika á að hefja undirbúning að gjaldfrjálsum grunnskóla en eins og greint var frá á Fréttavef Morgunblaðsins fyrr í dag þá lögðu fulltrúar Vinstri grænna tillögu þar að lútandi fram.

Samkvæmt upplýsingum frá Vinstri grænum varð talsverð umræða í borgarstjórn Reykjavíkur um tillögu Vinstra grænna um að hætta gjaldtöku í grunnskólum Reykjavíkur.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vildu fella tillöguna en fulltrúar Samfylkingarinnar að henni yrði vísað til menntaráðs. Fulltrúi Frjálslyndra lýsti stuðningi við tillögu VG.

Fram kom að flestir þeir sem tjáðu sig um málið vildu gjarnan umræðu um málið en að það væri engu að síður ekki tímabært. Oddviti Vinstri grænna, Svandís Svavarsdóttir, lagði þá fram breytingu á tillögunni, í þá veru að skoða möguleika á að hefja undirbúning að gjaldfrjálsum grunnskóla. Sú tillaga var samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum um að vísa tillögu VG þannig breyttri til menntaráðs, að því er segir í tilkynningu frá Vinstri grænum.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.