Alþingi kemur saman á morgun

Rúv.is: Alþingi Íslendinga kemur saman á morgun eftir jólahlé, nokkru fyrr en venja er til og einum degi fyrr en starfsáætlun gerir ráð fyrir. Þriðja umræða um frumvarp menntamálaráðherra til nýrra laga um Ríkisútvarpið er fyrsta málið sem tekið verður fyrir á vorþingi.
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis átti þingið að koma saman þriðjudaginn 16. janúar en þegar 3. umræðu um Ríkisútvarpið var frestað fyrir jól var ákveðið að þingið kæmi saman á degi fyrr og hefst þingfundur því klukkan 13.30 á morgun.
Frumvarpið um Ríkisútvarpið hefur alls verið afgreitt fimm sinnum út úr menntamálanefnd, nú síðast á föstudag, en án þess að nein sátt sé um málið milli stjórnar og stjórnarandstöðu frekar en fyrri daginn. Þótt vorþing verði stutt vegna alþingiskosninganna í vor liggja mörg mál fyrir þinginu.
Á annað hundrað frumvörp og hátt í 70 önnur þingmál bíða afgreiðslu fyrir utan þau mál sem enn eiga eftir að bætast við. Af kunnuglegum þingmálum sem lengi hafa verið í undirbúningi eða á dagskrá má nefna frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra um nýsköpunarsjóð og fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra. Og af öðrum málum sem líkur eru á að verði talsvert rædd má nefna innflytjendamál.
Starfsáætlun Alþingis gerir ráð fyrir því að þingi ljúki 15. mars og starfi því aðeins í tvo mánuði á þessu kosningavori.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.