Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Refsing vegna nauðgunar allt að 16 ár

19. september 2006

Björn Bjarnason, dóms-og kirkjumálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi frumvarp um breytingu á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Lagt er til að hugtakið nauðgun verði rýmkað mjög frá því sem nú er og refsingar við slíku broti hertar upp í allt að 16 ára fangelsi í stað allt að 6 ára nú.

Samkvæmt frumvarpinu verður ekki lengur refsivert að stunda vændi sér til framfærslu en í staðinn megi refsa fyrir að bjóða fram, miðla eða óska eftir kynmökum í opinberri auglýsingu. Einnig skal fyrningarfrestur vegna kynferðisbrota á börnum hefjast við 18 ára aldur í stað 14 ára nú.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.