Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Úrvalsvísitalan hækkaði um 15,83% á árinu

29. desember 2006

Mbl.is: Úrvalsvísitalan hækkaði um 15,83% á árinu 2006 en hún hækkaði um 1,22% í Kauphöll Íslands í dag. Um síðustu áramót stóð vísitalan í 5.534,39 stigum en nú um áramót er hún 6.410,48 stig. Í dag hækkaði Exista mest eða um 2,74% en Mosaic Fashion lækkaði mest eða um 4,38%.

Í Hálf fimm fréttum Kaupþings kemur fram að nú þegar síðasta viðskiptadegi ársins 2006 er lokið er óhætt er að segja að stormasamt ár sé að baki. Markaðurinn fór mjög vel af stað í ársbyrjun. Mesta hækkun Úrvalsvísitölunnar á einum degi nam 3,4%, þann 5. janúar, en nokkuð var um miklar hækkanir á milli daga í upphafi árs og virtist stefna í enn eitt metárið í Kauphöllinni. Úrvalsvísitalan stóð í 6925,45 stigum í lok dags 15. febrúar og hafði þá hækkað um rúmlega 25% frá áramótum. Þetta varð þó hennar hæsta gildi innan ársins.

„Hins vegar urðu nokkur vatnaskil þann 21. febrúar þegar Fitch breytti horfum á lánshæfi landsins í neikvæðar. Á næstu vikum þar á eftir birtust síðan margar neikvæðar skýrslur um horfur í íslensku efnahagslífi, og hjá íslensku bönkunum auk þess sem gengi krónunnar féll með skörpum hætti. Þessi órói hafði veruleg áhrif á hlutabréfamarkaðinn.

Úrvalsvísitalan hríðféll og lækkaði m.a. um 4,4% á einum degi þann 24. mars og um 4,6% þann 4. apríl. Úrvalsvísitalan náði sínu lægsta gildi þann 27. júlí en þá stóð hún í 5258,54 stigum Hún hafði þá lækkað um 5% frá áramótum en rúmlega 24% frá sínu hæsta gildi á rúmlega 5 mánuðum. Þegar hér var komið við sögu var flest allt það neikvæða sem hægt var að segja um íslenskt atvinnulíf komið fram og allgóð svör höfðu komið fram við mörgum gagnrýnisröddum. Í kjölfarið tók bæði gengi krónunnar og Úrvalsvísitalan að hækka á nýjan leik. Sem dæmi um betri aðstæður á markaði var Exista var skráð í Kauphöllina í september og þá var Icelandair skráð á markað í desember, en hætt hafði verið við skráningu félagsins í vor vegna erfiðra markaðsaðstæðna.

Eftir lok viðskipta í dag stendur Úrvalsvísitalan í 6410,48 stigum, hefur hækkað um tæp 22% frá sínu lægsta gildi í sumar, eða sem jafngildir 15,8% hækkun frá áramótum (leiðrétt fyrir arðgreiðslum er hækkunin 19%). Þó hér sé ekki um að ræða hækkun í líkingu við það sem sést hefur undanfarin þrjú ár má engu að síður segja að hækkunin sé vel ásættanleg miðað við þær ytri aðstæður sem ríkt hafa á árinu," samkvæmt Hálf fimm fréttum.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.