Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

Framhaldsskólar: Stytting enn inn í myndinni

10. desember 2006

Rúv.is: Menntamálaráđherra segir ekki vera búiđ ađ taka styttingu framhaldsskólanáms út af borđinu. Styttra nám rúmist innan tillagna um starfsnámsmiđađ nám, sem nefnd ráđherra hefur unniđ ađ.

Ţorgerđur Katrín Gunnarsdóttir segist vonast til ađ nefndastarfi menntamálaráđuneytisins og kennarasambandsins um starfsemi framhaldsskóla landsins ljúki í janúar. Hún segist hafa beint ţví til nefndarmanna ađ ţeir taki sérstakt tillit til niđurstađna í skýrslu um starfsnám, sem birt var í sumar. Ţar kemur fram ađ framvegis verđi ađeins eitt stúdentspróf, hvort sem fólk komi af bóknáms- eđa starfsnámsbrautum.

Rćtt var viđ Jón B Stefánsson, skólameistara Fjöltćkniskólans, formann nefndarinnar í Speglinum í vikunni. Hann sagđi umrćđuna um ţriggja ára framhaldsskólanám ekki alveg eiga heima í tillögum nefndarinnar. Hann líti svo á ađ verđi tillögur nefndarinnar ráđandi ţá sé umrćđa um ţriggja ára framhaldsskólanám í raun komin út af borđinu. Frekar eigi ađ rćđa innihald námsins í stađ ţess ađ rćđa ţann tíma sem námiđ eigi ađ taka.

Ţorgerđur Katrín segir ađ styttra framhaldsskólanám rúmist innan tillagnanna og ađ unniđ verđi áfram ađ ţví ađ reyna ađ breyta námsskipaninni. Hún segir ađ byggja verđi upp menntakerfi sem geri ţeim unglingum sem búnir séu ađ ákveđa framtíđarstarf sitt, kleift ađ sérhćfa sig í námi sínu. Auđvelt sé ađ byggja upp skólakerfi sem taki líka tillit til ţeirra sem ekki hafi ákveđiđ sig.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.