Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

SUS vill fella niður matartolla

18. júlí 2006

Samband ungra sjálfstæðismenn skorar á ríkisstjórnina að fylgja vinnu svonefndrar matarverðsnefndar eftir með niðurfellingu á tollum og öðrum innflutningshöftum sem enn hvíla á innfluttri matvöru.

SUS segir í ályktun, að samhliða þurfi að gera grundvallarbreytingar á íslensku landsbúnaðarkerfi og skapa íslenskum bændum svigrúm til að keppa á frjálsum markaði.

„Ríkisafskipti hafa aldrei haft jákvæð áhrif á neina atvinnugrein og það á ekki síst við um íslenskan landbúnað. Tímabært er að forræðishyggju og opinberum afskiptum af íslenskum landbúnaði linni svo að framtakssemi og hugvit íslenskra bænda fái notið sín í frjálsri samkeppni," segir í ályktuninni.

frétt af www.mbl.is

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.