Fréttir
Kristján Þór oddviti XD í N-A kjördæmi

Xd.is: Alls kusu 3.033 í prófkjöri sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi. 4.089 voru á kjörskrá þegar kjörfundi lauk en það jafngildi 74% kosningaþátttöku. Auðir seðlar og ógildir voru 104. Þegar öll gild atkvæði, 2.929, hafa verið talin er röð frambjóðenda þessi:
Í 1. sæti hefur Kristján Þór Júlíusson hlotið 1.461 atkvæði.
Í 1.-2. sæti hefur Arnbjörg Sveinsdóttir hlotið 1.596 atkvæði.
Í 1.-3. sæti hefur Ólöf Nordal hlotið 1.426 atkvæði.
Í 1.-4. sæti hefur Þorvaldur Ingvarsson hlotið 1.635 atkvæði.
Í 1.-5. sæti hefur Sigríður Ingvarsdóttir hlotið 1.735 atkvæði.
Í 1.-6. sæti hefur Steinþór Þorsteinsson hlotið 1.661 atkvæði.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.