Heldur vinstribylgjan áfram í rómönsku Ameríku?
Mikil spenna er í kosningum sem nú standa yfir í Mexíkó en afar mjótt er á mununum međ ţeim Andres Manuel Lopez Obradors í Lýđrćđislega byltingarflokknum og Felipe Calderon í Ţjóđarframtaksflokknum samkvćmt skođanakönnunum. Kjörstađir voru opnađir kl. 13 ađ íslenskum tíma og verđur lokađ kl. 1 eftir miđnćtti. Búist er viđ ađ ţremur tímum síđan liggi fyrir hver verđi nćsti forseti landsins. Auk forsetakosninga er einnig veriđ ađ kjósa um ţingsćti, ţrjú ríkisstjóraembćtti og borgarstjóraembćttiđ í höfuđborginni Mexíkóborg. Alls eru um 71 milljón manna á kjörskrá.
Ţriđji frambjóđandinn, Roberto Madrazo í Byltingarflokknum, nýtur ekki eins mikils fylgis. Obrador er vinstrisinnađur og fyrrum borgarstjóri Mexíkóborgar en Calderon íhaldsmađur og fyrrum orkumálaráđherra landsins. Ef Obrador sigrar í kosningunum verđur Mexíkó enn eitt ríkiđ í rómönsku Ameríku ţar sem vinstri menn fara međ völdin. Ekki er ţó víst ađ svo fari ađ nágrannaríki Bandaríkjanna verđi undir stjórn vinstrimanns en í fyrsta skipti mega Mexíkóar í Bandaríkjunum taka ţátt í kosningunum í Mexíkó.
Frétt birtist fyrst á www.mbl.is
Hćgri.is
Fréttabréf
Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.