Fréttir
Sjálfsagt ađ sveitarfélögin komi ađ málinu

MBL.is: Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir það sjálfsagt mál að sveitarfélögin komi að borði með ríkisstjórninni þegar um sé að ræða aðgerðir sem eigi að koma öllum landsmönnum til góða.
"Það er eðlilegt að sú krafa sé uppi og við skorumst ekki undan því. [...] Menn verða að fara yfir þetta í einhverju heildarsamhengi."
Aðspurður segir Kristján Þór að ekki hafi verið teknar ákvarðanir um frestun framkvæmda hjá Akureyrarbæ. Hins vegar hafi öllum framkvæmdum um viðhald og endurbætur á skólahúsnæði þegar verið frestað.
Hvað varðar framkvæmdir í miðbæ Akureyrar segir Kristján að þær séu meira og minna á vegum einkaaðila og ekki standi til að fresta þeim.
Hćgri.is
Fréttabréf
Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.