Ungir danskir þingm. vilja aðskila ríki og kirkju
Rúv.is: Þverpólitísk samstaða er meðal ungra þingmanna á danska þinginu um aðskilnað ríkis og kirkju. Þeir segja að á meðan kristni sé ríkistrú í Danmörku, verði gagnrýni á múslímaheiminn full hræsni.
Frá þessu segir í danska dagblaðinu 24 Tímum sem gerði könnun meðal danskra þingmanna. Í svörum sínum benda þingmennirnir á að trú eigi að vera einkamál en ekki mál ríkisins, ennfremur að sífellt fleiri kjósi að vera utan trúfélaga.
Þingmennirnir, sama hvar í flokki þeir standa, eru á þeirri skoðun að þjóðkirkja eigi að heyra sögunni til. Þeir segja að svo lengi sem Danir hafi þjóðkirkju, verði gagnrýni þeirra á múslima um að blanda saman stjórnmálum og íslam, hol.
Liselotte Malmgart, guðfræðingur við háskólann í Árósum segir umræðuna ekki koma á óvart og að hún eigi eftir að verða háværari eftir því sem áhangendum kristinnar kirkju haldi áfram að fækka og múslímum að fjölga.
Óhjákvæmilegt sé að þeir sem ekki tilheyri dönsku þjóðkirkjunni, finnist þeim mismunað. Hún segir umræðuna þegar hafa farið fram í Noregi og Svíþjóð en í Danmörku hafi minna farið fyrir henni. Svíar skildu að ríki og kirkju árið 2000 en kristni er enn ríkistrú í Danmörku, Noregi, Finnlandi og á Íslandi.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.