Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

George H. W. Bush sćkir Ísland heim

26. júní 2006

George Herbert Walker BushMBL.is: George H. W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur þekkst boð forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar um að koma í heimsókn til Íslands 4.-7. júlí næstkomandi.

Forsetinn fyrrverandi kemur til landsins síðdegis þriðjudaginn 4. júlí og verður gestur forseta Íslands meðan á dvölinni stendur. Hann situr kvöldverðarborð forseta Íslands á Bessastöðum á þjóðhátíðardegi Bandaríkjamanna 4. júlí. Með í för forsetans verða nokkrir vinir hans, m.a. Sig Rogich sem var sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í forsetatíð George H. W. Bush.

George H. W. Bush og föruneyti munu halda til laxveiða í boði Orra Vigfússonar formanns Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), en forsetinn fyrrverandi hefur verið eindregin stuðningsmaður slíkrar verndar.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.