Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

N-Kórea: S-Kórea styður ályktun SÞ

16. nóvember 2006

Rúv.is: Suður-Kóreumenn eru reiðubúnir að styðja ályktun Sameinuðu þjóðanna þar sem mannréttindabrot Norður-Kóreumanna eru fordæmd. Þeir hafa til þessa neitað að gagnrýna nágranna sína fyrir slík brot.

Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa jafnan reynt að forðast að styggja granna sína í norðri þegar þeir hafa verið gagnrýndir fyrir mannréttindabrot af ýmsu tagi. Nú hefur orðið breyting þar á. Utanríkisráðuneytið í Seoul lýsti því yfir í dag að Suður-Kóreumenn hygðust styðja ályktunartillögu Sameinuðu þjóðanna þar sem mannréttindabrot ráðamanna í Pyongyang eru fordæmd. Með því vonast þeir til þess að eitthvað verði gert til að bæta réttindi almennings í Norður-Kóreu og jafnframt að samskipti umheimsins við norðanmenn aukist. Rík þörf sé á slíku, ekki síst eftir kjarnorkusprengingu þeirra í síðasta mánuði. Hún olli mótmælum um allan heim.

Búist er við því að atkvæði verði greidd á næstu dögum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um ályktun þar sem þess er krafist að ráðamenn í Norður-Kóreu virði mannréttindi þegnanna. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og ýmis mannréttindasamtök segja að ástand mannréttindamála í landinu sé afar slæmt. Pólitískir fangar hafist við í fangabúðum við ömurlegar aðstæður. Þá séu opinberar aftökur stundaðar þeim til viðvörunar sem hyggist krefjast aukinna réttinda. Ráðamenn í Pyongyang hafa til þessa vísað á bug öllum ásökunum um að þeir virði ekki mannréttindi.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.