EFTA: Fríverslunarsamningur viđ S-Afríkuríki
RUV.is: Í morgun hófst á Höfn í Hornafirði ráðherrafundur EFTA-ríkjanna. Um 150 manns sitja fundinn þar sem meðal annars verður undirritaður fríverslunarsamningur EFTA við Tollabandalag Suður-Afríkuríkja.
Fundarmenn komu til Hornafjarðar í gær þar sem sameinast var í kvöldverði á Hótel Höfn en ráðherrafundinn sækja utanríkisráðherrar EFTA ríkjanna, Íslands, Sviss, Noregs og Liechtenstein. Auk þess setja fundinn fulltrúar í þingmanna- og ráðgjafanefnd EFTA og dómarar frá EFTA dómstólnum.
Á fundinum eru meðal annars rædd samskipti EFTA-ríkjanna, fríverslunarsamningar EFTA við önnur ríki, samskipti EFTA og Evrópusambandsins og áhugi Færeyinga á aðild að EFTA verður ræddur sérstaklega. Klukkan tvö í dag verður undirritaður fríverslunarsamningur EFTA við Tollabandalag Suður-Afríkuríkja en þetta mun vera fyrsti fríverslunarsamningur þar sem EFTA ríkin gera við ríki í Afríku sunnan Sahara.
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra stýrir fundinum á Höfn en Ísland hefur farið með formennsku í EFTA undanfarið ár en Svisslendingar taka við formennskunni í dag. Áætlað er að ráðherrafundi EFTA ljúki á sjötta tímanum í dag.
Hćgri.is
Fréttabréf
Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.