Danske Bank: Efnahagsstaðan hefur batnað
Rúv.is: Íslendingar eru skuldugastir allra þjóða sem matsfyrirtækið Fitch Ratings metur. Skuldir Íslands eru meira en þrefalt meiri en erlendar tekjur. Yfirhagfræðingur Danske Bank segir þó að horfur íslenska þjóðarbúsins hafi batnað mjög síðan bankinn birti neikvæða skýrslu um íslenska hagkerfið fyrr á þessu ári.
Breska matsfyrirtækið Fitch Ratings staðfestir að mestu leyti fyrra mat sitt á lánshæfi íslenska ríkissjóðsins. Horfur í efnahagsmálum eru hins vegar enn taldar neikvæðar eins og þær hafa verið frá því í febrúar. Í skýrslu Fitch segir að Ísland sé skuldugasta land sem fyrirtækið meti og óstöðugleiki sé mikill. Skuldir þjóðarbúsins séu meira en þrefalt meiri en erlendar tekjur.
Danski bankinn Danske Bank gaf fyrr á árinu út afar neikvæða skýrslu um horfur í íslenskum efnahagsmálum. Yfirhagfræðingur bankans, Carsten Valgreen, kveðst hafa lesið skýrslu Fitch af áhuga. Hann segir að skýrslan sé í stórum dráttum svipuð þeirri sem Fitch gaf út í febrúar. Íslenska hagkerfið sé í biðstöðu. Aðstæður hafi þó batnað talsvert frá því Danske Bank gaf út umdeilda skýrslu sína í mars, þar sem varað var við ofhitnun hagkerfisins og gengishruni krónunnar.
Valgreen segir að það sé fremur aðstæðum á alþjóðamörkuðum að þakka, heldur en aðgerðum íslenskra stjórnvalda eða bankanna. Erlendir fjárfestar séu enn reiðubúnir til að taka áhættu og það hafi auðveldað íslenskum bönkum að endurfjármagna lán sín. Carsten Valgreen stendur þó við þá skoðun sína að íslenska hagkerfið sé enn of skuldsett og óstöðugt. Hægja þurfi á þenslu hið fyrsta.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri, kveðst í meginatriðum á sama máli. Í Seðlabankanum séu menn fegnir því að Fitch hafi ekki breytt lánshæfismati Íslands frá í febrúar þrátt fyrir að þá hafi horfur verið taldar neikvæðar. Lakara lánshæfismat hefði ekki síst komið illa við bankana þegar þeir endurfjármagna lán sín. Ríkissjóður hyggst á næstu dögum taka stærsta erlenda lánið sem hann hefur tekið þegar skuldabréf verða gefin út í evrum. Ætlunin er að tvöfalda gjaldeyrisforða Íslands, sem nú nemur 70 miljörðum króna. Davíð segir erlenda fjárfesta sýna mikinn áhuga á skuldabréfunum og telur ekki að skýrsla Fitch verði til að draga úr honum.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.