Umræða um innflytjendamál eðlileg
Rúv.is: Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir útlendingahatur ekki hafa blossað upp hér á landi. Hann segir þó nauðsynlegt að Íslendingar vandi sig í málefnum innflytjenda því annars gæti útlendingahatur skotið hér rótum. Hann segir mikil viðbrögð við ummælum Magnúsar Þórs Hafsteinssonar ekki óeðlileg.
Jón segir að ríkisstjórnin muni bregðast við. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra telur ekki að hér sé að blossa upp útlendingahatur. Mikil umræða hefur verið í kjölfar þess að Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, lýsti því yfir í fjölmiðlum um helgina að mistök hafi verið hjá íslenskum yfirvöldum að sækja ekki um lengri frest, á gildistöku ákvæða sem heimila frjálst flæði vinnuafls hingað til lands frá Evrópska efnahagssvæðinu. Rætt verður um fjölgun útlendinga á Íslandi, utandagskrár á Alþingi klukkan 13.30. Málshefjandi er Magnús Þór og Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra, verður til andsvara.
Geir H. Haarde forsætisráðherra vildi ekki, þegar Fréttastofa Útvarpsins leitaði eftir því, tjá sig um þjóðfélagsumræðuna um málefni innflytjenda að svo stöddu.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.