Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

Fóđurtollar lćkkađir

23. júní 2006

NautgripurMBL.is: Landbúnaðarráðuneytið hefur í dag ákveðið að afnema gjöld af innfluttum hráefnum til fóðurgerðar og lækka um helming toll af innfluttum fóðurblöndum, eins og fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins. Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda, naut.is.

„Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið með reglugerð að afnema fóðurtoll af hráefni til fóðurgerðar og lækka um helming toll á fullbúnar fóðurblöndur þ.e. úr 7,80 kr./kg í 3,90 kr. á hvert kíló og tekur breytingin gildi þann 1. júlí nk.

Með þessari breytingu lækka tollar á fóðri um 50 m. kr. á ári og hefur áhrif til samsvarandi lækkunar á rekstrarkostnaði þeirra búa sem háðar eru erlendu kjarnfóðri.

Breyting þessi er gerð m.a. í framhaldi af ályktun síðasta Búnaðarþings og aðalfundar Landssambands kúabænda, en þar var óskað eftir verulegri lækkun eða afnámi fóðurtolla," að því er fram kemur á naut.is.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.