Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Framsókn kemur hvorki að manni í Kraganum né RVK

4. nóvember 2006

Rúv.is Vinstri grænir bættu við sig flestum þingmönnum ef kosið yrði til Alþingis nú samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Capacent. Framsóknarflokkurinn tapaði flestum en Frjálslyndir kæmu ekki manni á þing.

Vinstri grænir bættu við sig 8 þingmönnum en Frjálslyndir næðu ekki manni á þing ef kosið yrði til Alþingis nú, samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Capacent. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 29 þingmenn en Framsóknarflokkurinn 5. Samfylkingin tapaði 4.

Samkvæmt könnuninni er fylgi Sjálfstæðisflokksins 42,9% á landsvísu, Samfylkingarinnar 25,1% og vinstri grænir fá 20,1% fylgi. Framsóknarflokkurinn fær 8,3% en Frjálslyndir 3,5%. Fréttastofa Útvarps fékk Ólaf Þ Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, til að reikna út skiptingu þingsæta eftir flokkum og kjördæmum, miðað við þessa könnun.

Samkvæmt könnuninni fær Sjálfstæðisflokkurinn 7 þingmenn í Suðvesturkjördæmi, þar af 2 jöfnunarþingmenn, Samfylking fær 3 og vinstri grænir 2. Framsókn kemur ekki að manni.

Í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fær Sjálfstæðisflokkurinn samtals 11 þingmenn, þar af einn jöfnunarmann, Samfylkingin fær 6 menn, þar af 2 jöfnunarmenn, og vinstri grænir fá 5 þingmenn, þar af einn jöfnunarmann. Framsóknarflokkurinn nær ekki manni á þing í Reykjavík.

Samfylkingin stillir upp framboðslista í Suðurkjördæmi um helgina. Þar fær flokkurinn 3 þingmenn samkvæmt þjóðarpúlsinum. Sjálfstæðisflokkurinn fær 4, Framsóknarflokkurinn fær einn þingmann og Vinstri grænir tvo, þar af einn jöfnunarmann.

Í Norðausturkjördæmi þar sem framboðslisti Samfylkingar skýrist einnig um helgina fær flokkurinn 2 þingmenn, jafn marga og bæði Vinstri grænir og Framsóknarflokkurinn, en jöfnunarsætið félli þeim síðastnefnda í skaut. Sjálfstæðisflokkurinn fær fjóra menn.

Í Norðvesturkjördæmi fá Samfylking, Vinstri grænir og Framsóknarflokkur tvo þingmenn hver. Sjálfstæðisflokkurinn fær þrjá.

Tæplega 4.000 manns voru í úrtaki Capacent og svarhlutfallið var ríflega 61%. Rétt er að taka fram að Ólafur Þ Harðarson setur nokkra fyrirvara við útreikningana þannig séu vikmörk könnunarinnar 1-3%, prósentutölur í hverju kjördæmi eru ekki gefnar upp með aukastöfum og talsvert langt er til kosninga svo margt getur breyst.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.