Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

ESA hefur formlega athugun á ríkisađstođ til Íbúđa

22. júní 2006

ÍbúđalánasjóđurMBL.is: Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð sem veitt er Íbúðalánasjóði. Með ákvörðuninni er ESA að bregðast við dómi EFTA-dómstólsins frá 7. apríl sl., þar sem dæmd var ógild sú niðurstaða ESA, sbr. ákvörðun frá 11. ágúst 2004, að ríkisaðstoðin væri þjónusta í almannaþágu og því í samræmi við ríkisstyrkjareglur EES-samningsins.

Í dómnum kemur fram, að vafi leiki um tiltekin atriði og að niðurstöður ESA um þau hafi ekki verið nægilega rökstudd af hálfu eftirlitsstofnunarinnar. ESA mun því hefja nýja athugun málsins og er líklegt að athugunin muni taka u.þ.b. eitt ár.

Tilkynning Eftirlitsstofnunar EFTA

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.