Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Gagnrýnir hlut kvenna í prófkjöri

30. október 2006

Rúv.is: Útlit er fyrir að konum fækki á þingi í kosningum í vor segir Auður Styrkásdóttir stjórnmálafræðingur. Það stefnir í að engin kona fari á þing fyrir Norðvesturkjördæmi eftir kosningarnar í vor.

Norðvesturkjördæmi hefur tíu þingmenn. Anna Kristín Gunnarsdóttir er eina konan í þeim hópi. Hún er annar af tveimur þingmönnum sem Samfylkingin hefur í kjördæminu. Í prófkjöri flokksins í gær hafnaði hún hins vegar í þriðja sæti. Af fjórum efstu þingmönnum kjördæmisins eru þrír ráðherra, Sturla Böðvarsson, Magnús Stefánsson og Einar K. Guðfinnsson.

Auður segir að prófkjöri séu verri fyrir konur en karla. Konum geðjist ekki að baráttuaðferðum í prófkjörsslag þær hafi minna fjármagn, séu minnihluti þeirra sem kjósi í prófkjörum og karlar kjósi síður konur en karla í prófkjörum.

Auður er svartsýn á að hlutur kvenna verði aukinn á þingi. Nýhafin prófkjörsbarátta lofi ekki góðu. Hún minnir á að konum fækkaði á þingi kosningunum fyrir tæpum fjórum árum, úr því að vera 35% þingmanna í 30%.

Auður bendir á að konur séu ekki drjúgur hluti þingmanna nema í þeim löndum sem hafi tekið upp kynjakvóta. Hún telur að til að breyta málum hér á landi þurfi þeir flokkar sem ekki hafa gert það nú þegar að ígrunda vandlega hvernig þeir ætli að rétta hlut kvenna. Ekkert slíkt sé í samþykktum Sjálfstæðisflokksins. Auður segir úrslitin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á laugardag hræðileg.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.