Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Þjóðhátíðarsjóður lagður niður

27. október 2006

Mbl.is: Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að leggja niður Þjóðhátíðarsjóð innan fjögurra eða fimm ára. Þá verður skýrsla nefndar um alþjóðlega fjármálastarfsemi á Íslandi kynnt eftir tvær vikur. Einnig var samþykkt að fara í úttekt á áhrifum af starfi Vísinda- og tækniráðs.

Þjóðhátíðarsjóður starfar skv. skipulagsskrá nr. 361/1977 og er tilgangur hans ,,að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf," eins og segir á vefsíðu forsætisráðuneytis.

Stofnfé sjóðsins er ágóði Seðlabanka Íslands af útgáfu þjóðhátíðarmyntar í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974, og myndar hann höfuðstól Þjóðhátíðarsjóðs. Stjórn sjóðsins úthlutar ráðstöfunarfé hverju sinni í samræmi við megintilgang hans. Samkvæmt skipulagsskrá skal við það miðað "að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau."

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.