Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Frjálshyggjufélagið mótmælir hækkun lágmarksgjalds

24. október 2006

Mbl.is: Frjálshyggjufélagið hvetur þingmenn til að samþykkja ekki frumvarp þess efnis að hækka lágmarksgjald í lífeyrissjóði úr 10% í 12%.

„Að þvinga fólk til að leggja fé sitt í lífeyrissjóði er óréttlát aðgerð. Ekki er eðlilegt að launþegar neyðist til að treysta stjórnum lífeyrissjóða fyrir sparnaði sínum sem duga á til framfærslu í ellinni. Einstaklingarnir ættu sjálfir að ákveða hvernig sparnaði þeirra er best fyrir komið. Með þeim hætti kemst á eðlileg samkeppni á milli ólíkra fjárfestingakosta þar sem þátttakendur á markaði móta sjálfir skipulag sparifjármarkaða,“ segir í tilkynningu frá Frjálshyggjufélaginu.

Þá hvetur félagið til þess að snúið verði af þeirri braut sem nú sé fetuð, þar sem hluta af sparnaði fólks sé stýrt af ríkinu, og leggur þess í stað til að skattar verði lækkaðir á sparnað og launatekjur fólks. Þannig fái allir launþegar aukið svigrúm til sparnaðar.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.