Nýr bæjarstjóri fær greidd laun fyrir óunna vinnu!
Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar á Álftanesi var nokkur hiti í mönnum enda voru úrslit kosninganna dramatísk svo ekki sé meira sagt. Á fundinum fóru fram bæjastjóraskipti er Guðmundur G. Gunnarsson vék úr embætti og við lyklavöldum tók Sigurður Magnússon.
Sjálfstæðisflokkurinn lét bóka eftirfarandi: „Ljóst er í okkar huga að framboð Á lista með 596 atkvæði, getur siðferðislega ekki umsnúið samningum, sem þegar eru gerðir með lögmætum hætti. Í kosningunum höfnuðu 913 kjósendur Á lista eða 60.5% kjörgengra, með því að kjósa D lista, skila auðu, eða sitja heima.“
Ekki náðist samstaða um starfslokasamning við fráfarandi bæjarstjóra og var málinu skotið til bæjarráðs. Þegar að ráðningu nýs bæjarstjóra kom voru Sjálfstæðismenn ekki á eitt sáttir og létu bóka m.a. „Hvað launakjör varðar er það ekki eðlilegt að bæjarstjóri fái afturvirk laun frá 1 júní sl., eins og lagt er til. Laun nýs bæjarstjóra hljóta að miðast við upphaf formlegrar ráðningar, sem getur ekki orðið fyrr en ný bæjarstjórn hefur tekið við eftir kosningar og samþykkt ráðningarsamning viðkomandi.“
Venjuleg fundarstörf voru einnig innt af hendi og í lok fundar var boðað til aukafundar fimmtudaginn 15. júní.
frétt tekin af www.vikurfrettir.is
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.