Fréttir
Konum fjölgar í stjórnendastöðum

Konum hefur fjölgað í stjórnendastöðum fyrirtækja síðan 1999, samkvæmt tölum sem Hagstofan hefur tekið saman. Fjölgunin er hlutfallslega mest í stærri fyrirtækjum. Kvenkyns framkvæmdastjórar í fyrirtækjum sem hafa fleiri en 250 manns í vinnu hefur fjölgað úr 1,8% árið 1999 í 10,8% árið 2005.
Í smærri fyrirtækjum sem hafa innan við 10 manns í vinnu helst hlutfall kvenkyns framkvæmdastjóra svipað: í kringum 15-20%. Hægt er að skoða tölurnar á heimasíðu Hagstofunnar.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.